Það hefur sko margt gerst síðan 8. maí, það skal ég segja ykkur.
Ef við vinnum okkur aftur þá kláraði ég skólaönnina á föstudaginn. Því var að sjálfsögðu fagnað með látum. Bekkurinn skellti sér á Café IDA og borðaði hádegismat í boði skólans . Eftir matinn var svo var sest á grasblett á Íslandsbryggju og spjallað um framtíðina (og hversu kennararnir væru gagnslausir). Nokkrum tímum og þremur kössum af bjór síðar enduðu svo nokkrir í grilli í bakgarðinum hjá okkur. Pulsur í forrétt og lax, nýjar kartöflur frá Mallorca og heimalagað pestó í aðalrétt. Öllu skolað niður með Dansk Pilsner úr Fakta(1,95 DKK pr.stk. / 58,5 DKK pr.kasse)
Eftir þessa veislu drifum við okkur svo á karnival í Fælledparken. Ekkert lítið fjör að klára 5 mánaða skólatörn! (Afrakstur annarinnar má sjá hér)
Í síðustu viku fórum við á þrenna tónleika. Emilíana Torrini í Koncerthuset (4/5), A Hawk and a Hacksaw á Vega (2/5) og Torsdagskoncert með DR SymphoniOrkestret í Koncerthuset (4/5). Bara gaman.
Við kíktum líka á opnun ljósmyndasýningar færeysk-sænska ljósmyndarans Maria Olsen á Nordatlantens Brygge. Áhugaverðar myndir sem fjalla um fiskveiðar og -verkun í Norður-Atlantshafinu. Meira um það hér.
Eftir sýninguna vorum við orðin svo sólgin í fisk að við brunuðum í gegnum hellidembu og þrumuveður á uppáhalds sushi staðinn okkar og borðuðum yfir okkur af Unagi Nigiri, California rúllum og fleira góðgæti.
Um síðustu helgi kíkti Óli í smá heimsókn frá Prag og tók Eduardo vin sinn með sér. Við fengum okkur að sjálfsögðu nokkra Ale Nr. 16 og spjölluðum um þjóðaríþrótt Colombiu.
Hún Halldóra vinkona okkar bauð okkur í mat fyrir ekki svo löngu. Það var gríðarfjör enda fullt hús af gestum. Hún eldaði líka dýrindis mat sem að ég á eftir að fá uppskriftir að. Góður kokkur og gestgjafi hún Halldóra. Við spjölluðum um heima og geima og hún benti okkur meðal annars á þessa stórskemmtilegu grein um nýjustu bók Haruki Murakami, "What I Talk About When I Talk About Running".
Við fórum einungis einusinni í bíó í maí. Sáum hina geisiáhugaverðu "Der Baader-Meinhof Komplex" (4/5). Það þarf varla að útskýra fyrir neinum um hvað hún fjallar.
Ég náði svo að lesa tvær skáldsögur með þessu öllu. Nýjasta bók Nick Hornby, "Slam", og fyrstu skáldsöguna hans Aravind Adiga, "The White Tiger".
Önnur fjallar um Sam, 16 ára gamlan skeitara, sem býr einn með mömmu sinni sem var 16 ára þegar hún eignaðist hann og hversu lífið getur verið erfitt á þeim aldri.
Hin fjallar um uppvöxt, þroska og athafnamennsku Balrams Halwai, klárasta stráksins í litlu þorpi á Indlandi.
En nú ætla ég að lesa yfir ritgerðina hennar Júlíu, sem að hún ætlar að skila um þetta leiti á morgun.
mánudagur, 1. júní 2009
Afsakið hlé...
Birt af
Þórir
kl.
06:52
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
9 ummæli:
hahahah... frábært þú fannst greinina..... takk sömuleiðis fyrir komuna og átið.... þið er afar skemmtilegir matargestir..... bíð upp á uppskrift í næsta matarboði.
já há nóg að gera hjá ykkur!!!
Bið að heilsa konunni þinni.
Kv.Guðný
Sko, fram að skilum þá var "við" í samhengi við bjór ekki Þórir og ég...
til hamingju með að vera búinn með hf1 ... víí var að leita af mér í skólanum í vikunni...
saknaði þín bara pínu.
kv hildur maria
eg profadi ad elda stjørnu indlands um daginn og var rosalega god. takk fyrir uppskirftina. nu ætla eg ad profa hvitlauksbraudsuppskriftina thina
Já, það var nú lítið Inga Rún!
Og ég get ekki beðið eftir næsta matarboði Halldóra.
Til hamingju með sýninguna Hildur, og takk fyrir mig. Ég sakna þess nú líka smá að tjilla með þér í skólanum.
Skila kveðjunni Guðný og bið að heilsa litlu famelíunni þinni. Og njótið sumarsins á Íslandi, það er margt verra en það!
Er ekki kominn tími til að skrifa blogg sem byrjar á "það hefur sko margt gerst síðan 1. júní, það skal ég segja ykkur." ??
Njaaa Siggi, það hefur bara ekkert svo margt gerst síðan 1. júní.
Hvað er að gerast hjá ykkur :) ?
kv.Guðný
Skrifa ummæli